Við leitum að aðila sem brennur fyrir íþróttina, hefur metnað til að ná árangri og er tilbúinn að vinna umfram starfshlutfall þegar það á við.

Þekking á starfsháttum JSÍ og ÍSÍ er kostur.  Frumkvæði og vilji til að auka veg og virðingu íþróttarinnar er  skilyrði.

Helstu ábyrgðarsvið:

Daglegur rekstur skrifstofu

Innlend mót

Erlend mót

ÍSÍ samstarf

Erlent samstarf s.s. EJU, IJF og Nordic

RIG – Undirbúningur og framkvæmd

Heimasíða: Ritstjórn og fréttir

Samskipti við fjölmiðla vegna móta

Umsjón með gagnagrunni JSÍ og skráningar í hann

Fjáröflun

Helstu eiginleikar sem leitað er eftir:

Sjálfstæði í starfi og frumkvæði

Hæfileikar til að eiga gott samstarf við ÍSÍ og aðildarfélög JSÍ og mikill vilji til að tryggja framgang Judo íþróttarinnar á Íslandi.

Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur

Umsóknarfrestur er til 22. mars 2023

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Másson, formaður JSÍ í síma 8983600 og netfangi johann@judo.is

Umsóknir sendist til johann@judo.is